fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin og vil kannski beina næstu spurningu inn á aðeins annað svið, sem tengist þó að lokum menningunni. Það er t.d. staða fjölmiðla sem er líka fjallað um í þessari áætlun. Þar er talað um þá 7 milljarða sem nú fara í fjölmiðla á ári, einkum til ríkismiðilsins. 6 milljarðar fara til ríkismiðilsins. Ég legg áherslu á að kalla hann ríkismiðilinn vegna þess að hann er líka kallaður í þessu frumvarpi almannaútvarp, burðugt almannaútvarp. Þar erum við náttúrlega í ákveðnum orðaleikjum. Ég tel að við getum ekki í raun réttri kallað þetta almannaútvarp nema við fáum þau skilaboð og leyfum skilaboðum almennings að flæða í gegnum þetta kerfi eins og við höfum lagt til í Miðflokknum, að fólk fái að velja hvert það ráðstafar þessum skatti, nefskatti, sem hver og einn þarf að greiða í ríkissjóð og fer í fjölmiðlun. Nú fer þetta allt á einn stað, sem lýtur á endanum stjórn stjórnmálamanna í gegnum stjórnirnar, sem er auðvitað ríkismiðill. Hann er ekki almannamiðill í sama skilningi og við myndum kannski fá tilfinningu fyrir ef almenningur hefði raunverulega aðkomu að þessu. En ég sé engin merki um að hæstv. forsætisráðherra hafi áhuga á að breyta nokkuð til í sambandi við Ríkisútvarpið og þá er það pólitísk skoðun og sýn hennar, þótt margir hafi orðið til að benda á að þetta sé að mörgu leyti óeðlilegt fyrirkomulag fyrir margra hluta sakir. Ég að vísu lýsi því ekki yfir alveg undanbragðalaust að alls staðar verði maður að vera á móti einhvers konar aðkomu ríkisins að fjölmiðlun, en RÚV eins og það er núna í staðinn fyrir að einblína einhvern veginn með hlutlausum hætti á söguna og menninguna, á bókmenntir og annað þar sem markaðsbrestir eru — það er í poppstöðvunum og ég held nú að á árum áður hafi verið talað afskaplega illa um Rás 2 í ræðustól Alþingis. (Forseti hringir.) Ég ætla ekki að gera það en hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) skilur vonandi hvert ég er að fara.