156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:11]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Það hefur komið fram í málflutningi þess ráðherra sem fer með fjölmiðla, hæstv. Loga Einarssonar, að breytingar verða á fjölmiðlaumhverfinu frá og með haustinu. Það stendur til að fara í heildarendurskoðun á þessu umhverfi. Við vitum öll hér inni að stærstu einstöku breytingarnar sem hafa orðið á þessum málaflokki hafa ekkert að gera með innlenda fjölmiðlun heldur tilkomu samfélagsmiðla. Það þarf ekki annað en að skoða þróun auglýsingatekna aftur í tímann til dagsins í dag til að sjá hvað hefur grafið undan rekstrargrundvelli einkaaðila í fjölmiðlun; tilkoma samfélagsmiðla. Að taka RÚV af fjárlögum eða breyta auglýsingamódeli þess er ekki að fara að breyta þeirri stöðu. Þess vegna held ég að það skipti máli að nálgast þetta ferli með með heildstæðum hætti sem ég veit að hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra ætlar að gera. Það kemur t.d. alveg til greina að endurskoða stöðu RÚV á auglýsingamarkaði að hluta til. Það getur vel verið að það komi til greina að skoða líkön eða módel sem þekkjast í löndunum í kringum okkur, t.d. í Noregi þar sem eru ákveðnar kvaðir á hvenær megi auglýsa og hvenær ekki. (Gripið fram í.) Ég held að það skipti líka miklu máli, og get alveg tekið undir það, að litið verði með uppbyggilegri gagnrýni á það hvers konar hlutverki RÚV þjónar, í hvað fjármagnið á að nýtast. Stjórn sem er sett yfir RÚV getur auðvitað haft skoðun á því, alveg eins og þeir sem reka miðilinn dagsdaglega. Þess vegna er verið að greiða fyrir þessa þjónustu. En ég vek bara athygli á því að staða samfélagsmiðla í þessu fjölmiðlaumhverfi er aðalástæðan fyrir þessum breytingum og við getum ekki horft fram hjá því í þessari umræðu.