156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:14]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér skiptir hraði framlagningar mála ekki máli heldur gæði. Við erum hérna í umræðu um fjármálaáætlun og höfum ekkert í höndunum til að ræða. Í þessari fjármálaáætlun er ekki verið að fylgja efni laganna til þess að þingið og stjórnarandstaðan geti átt samtal við fagráðherrana, sem ber í þessari umræðu. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra viðurkenndi það í dag í óundirbúnum fyrirspurnum að mælikvarðar fyrir málefnasviðin séu ekki í þessari áætlun og að þeim beri að skila samkvæmt lögunum. Á öllum málefnasviðum er búið að taka út flest ef ekki öll töluleg markmið, allir mælikvarðar eru teknir út. Hugmyndin að þau komi í ársskýrslum ráðherra — ársskýrslur fá ekki þinglega meðferð, fjármálaáætlun fær það. Þetta er algerlega óboðlegt gagnvart stjórnarandstöðunni. Við höfum ekkert í höndunum, ekkert. Hvað á að ræða? Kallað er eftir hagræðingartillögum frá landsmönnum, kemur ekkert fram hvar eigi að hagræða. Í hvað á að verja fjármununum? Hvar liggur hagræðingin?

Virðulegi forseti. Ég vil leggja hér til að hæstv. forseti geri hlé á þingfundi svo að við þingflokksformenn getum rætt þetta betur við hæstv. forseta.