fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Í umræðunni áðan steig hér í pontu hv. þm. Sigurjón Þórðarson og brigslaði minni hlutanum um einhverja tafaleiki og fór í orðaskipti við hæstv. ráðherra varðandi það hvort hún hefði áhyggjur af minni hlutanum, rétt eins og það sé minni hlutinn sem sé hér með dagskrárvaldið. Svipaðir atburðir áttu sér stað í gær þegar Guðmundur Ari Sigurjónsson ýjaði að svipuðum hlutum. Og í hvaða samhengi er þetta? Jú, þetta er í því samhengi, herra forseti, að ræðumenn voru í sinni fyrstu ræðu. Þeir voru að stíga í fyrsta skipti í pontu um mál. Það eru allir tafaleikirnir sem meiri hlutinn er að fara á taugum yfir, að fá að fara einu sinni í pontu. Það skal tekið fram að í því máli fór sá sem hér stendur ekkert einu sinni í pontu varðandi það mál. Þetta eru miklir tafaleikir.