156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég vil taka undir orð hv. þm. Ingibjargar Isaksen sem og Hildar Sverrisdóttur. Ég veitti þessu athygli við framlagningu áætlunarinnar en ég verð að viðurkenna að ég áttaði mig ekki á hversu mikið hafði verið stigið til baka, hversu langt skref hafði verið stigið til baka hvað birtingu gagna varðar í tengslum við fjármálaáætlunina frá því sem áður var. Það eru gögn, sem svona fljótt á litið virðast vera lögbundin, sem eru ekki þarna inni og það passar við svar hæstv. fjármálaráðherra við fyrirspurn hér fyrr í dag. Þannig að ég bara tek aftur undir beiðni okkar þingflokksformanna stjórnarandstöðu um að hér verði gert stutt hlé á þingfundi til að þingflokksformenn geti með forseta Alþingis aðeins glöggvað sig á stöðunni og rætt hvað til bragðs skal taka.