fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hingað upp og taka undir með hv. þingflokksformönnum og fagna því að þessi tillaga er hér fram komin um það að gera hlé á þessum þingfundi til að ræða þetta mál aðeins betur meðal þingflokksformannanna. Ég fagna því að þingheimur hafi áttað sig á því hvað ég er búinn að vera að tala um í allan dag og mikilvægi þess máls og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir okkur sem erum hér í þessum þingsal, áður en lengra er haldið inn í þessa umræðu, að við fáum úr því skorið hvernig þetta mál er vaxið. Í fyrsta lagi hvort þetta standist lögin og í öðru lagi hvort og hvernig við getum fengið þær upplýsingar sem við nauðsynlega þurfum til þess að við getum tekið upplýsta ákvörðun og umræðu um fjármálaáætlun, því að því miður eins og gögnin eru fyrir okkur lögð hér þá eigum við mjög erfitt með það. Þannig að ég fagna þessu.