fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum að það er erfitt fyrir þingheim að koma hér og fjalla um þetta mikilvæga plagg sem fjármálaáætlun er og líka alla þá aðila sem eru að koma til þingsins og veita okkur umsögn um þetta mál þar sem við erum að búa til leiðarljós fyrir framkvæmdarvaldið til að fara að undirbúa næstu skref í fjármálum ríkisins. Hér eru miklar yfirlýsingar hjá hæstv. ríkisstjórn um að hér sé allt svo útfært, útfært aðhald, og ein stóra breytan í þessari fjármálaáætlun er 110 milljarða hagræðing. Það er bara ekki eitt orð, engin útfærsla á þessum hagræðingartillögum í þessu plaggi, ekki neitt. Þau eru að tala um óútfærðar afkomubætandi aðgerðir. Við sögðum þá að þær væru óútfærðar. Hér er sagt að þær séu útfærðar en það er ekkert um það hvernig. Er það út af því að hv. ríkisstjórn er ekki enn þá búin að koma sér saman um það hvernig hún ætlar að hagræða? Er það ástæðan fyrir að gögnin liggja ekki hér fyrir?