fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ef ég skil málið rétt þá snýst þetta um 20. gr. laga um opinber fjármál þar sem segir:
„Hver ráðherra setur fram stefnu fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem hann ber ábyrgð á til eigi skemmri tíma en fimm ára. Í stefnunni skal lýsa áherslum og markmiðum, þ.m.t. gæða- og þjónustumarkmiðum, um fyrirkomulag, þróun og umbætur á þeirri starfsemi sem fellur undir viðkomandi málefnasvið. Í stefnunni skal gerð grein fyrir hvernig markmiðum verði náð, ábyrgðarskiptingu, tímasetningum, nýtingu fjármuna og áherslum við innkaup. Þá skal gerð grein fyrir fyrirhuguðum lagabreytingum. Stefna fyrir málefnasvið skal vera heildstæð og í samræmi við þau fjárhæðamörk sem fram koma í gildandi fjármálaáætlun.“
Virðulegi forseti. Í staðinn fyrir að karpa um þetta hér held ég að það væri góður bragur á því að menn myndu setjast yfir þessi mál því að burt séð frá því hvað hefur verið gert í fortíð þá liggur alveg fyrir eða ég held að við hljótum öll að vera sammála um það að við viljum fara eftir lögunum. Ef það er einhver vafi á því, nú erum við ekki sammála um það, held ég að það væri skynsamlegt að setjast aðeins yfir það áður en lengra er haldið. Ég þarf held ég ekki að færa rök fyrir því að við eigum að fara að lögum eða ég vona ekki, virðulegi forseti.