156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:24]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka hér undir tillögu þingflokksformanna minni hlutans. Síðan vil ég beina því til hæstv. ráðherra varðandi þær upplýsingar sem við erum að kalla hér eftir og hæstv. ráðherra benti á að hefðu ekki fylgt með í fyrra að þá voru þær birtar á netinu samhliða þegar þessar upplýsingar lágu fyrir með fjármálaáætlun. Þannig að hún er alveg réttmæt ósk minni hlutans þess efnis að kalla eftir þessum gögnum og vildi ég bara koma hér bæði til þess að taka undir með hv. þingflokksformönnum og beina þessu til hæstv. ráðherra.