156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:25]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég vildi bara koma hingað upp og taka undir með þeim þingmönnum sem hafa tjáð sig. Ég held að það skipti máli að úr því sé skorið hvort hér skorti bæði markmið og mælikvarða fyrir málefnasviðin. Ég get ekki séð að það sé einhverjum vandkvæðum bundið bara að skera úr um það. Ég held að það skipti máli fyrir okkur í áframhaldandi vinnu við málið. Ég held að þetta skipti máli fyrir þingmenn og það skiptir máli fyrir fjárlaganefndina í framhaldinu þannig að ég vildi koma og taka undir það og raunar hvetja virðulegan forseta til að hlutast til um að við göngum úr skugga um það hvort við séum á réttri leið.