156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:27]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Það er rétt hjá hæstv. ráðherra að vinnubrögðunum var breytt síðast þar sem meiri upplýsingar voru settar á netið en sem voru í útsendri í fjármálaáætlun, en það voru slóðir þar sem efni var að finna. Þetta snýst nefnilega um upplýsingagjöf og fyrirsjáanleika. Það er markmiðið með því að við ræðum fjármálaáætlunina, til að sjá hvernig þetta er fram í tímann. Hvernig erum við að ráðstafa fjármununum og hvernig erum við að sækja nýja fjármuni? Ég talaði um hér að það væri ekkert um það í þessu hvernig hagræðingin væri. Hvar á að fara í dýpri vasa og hvernig á að útfæra það? Hvað er Alþingi að fara að samþykkja hér sem leiðarljós fyrir framkvæmdarvaldið áður en það gerir fjármálaáætlunina? Er það bara eitthvað blint? Hvernig eiga hagaðilar, verkalýðshreyfingin, Samtök atvinnulífsins og atvinnuvegirnir, fólkið í landinu sem treystir á þetta, að geta metið það hvort þessi fjármálaáætlun sé að taka á þeirra áskorunum eða ekki þegar engar upplýsingar um það er að finna? Þetta snýst um vinnubrögð og virðingu fyrir þinginu (Forseti hringir.) og þeim sem eru að fara að koma að hjálpa okkur að klára þessa fjármálaáætlun.