156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:29]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér erum við auðvitað að ræða um eitt af lykilatriðum fjármálaáætlunar og það er forgangsröðun og áherslur eftir málefnasviðum. Það er ekki verið að setja það fram hérna með skýrum hætti og það er búið að koma fram hjá fyrri hv. þingmönnum að upplýsingarnar voru klárlega settar á netið í fyrra þó að þær hafi ekki verið prentaðar út en liggi ekki fyrir hér í dag. Það er einfaldlega það sem við erum að benda á. Það er mikilvægt fyrir okkur til að eiga hér málefnalega umræðu, til þess einmitt að geta spurt fagráðherrana út í þau markmið og þær áherslur sem ríkisstjórnin ætlar að setja í fjármálum og í verkefnum ríkisstjórnarinnar á næstu árum. Þannig að ég endurtek bara beiðni mína og okkar um að það verði gert örstutt hlé á þessum þingfundi til að við getum rætt þetta og svo að það sé hægt að glöggva sig aðeins á þessu máli frekar og fá skýringar.