156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:30]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér fer fram áhugaverð umræða. Það kom skýrt fram í máli hæstv. forsætisráðherra að hér er vissulega um að ræða ný vinnubrögð. Hún færði skýr rök fyrir því af hverju verið er að innleiða ný vinnubrögð og hvernig þessi nýju vinnubrögð munu nýtast betur til að ná að skila hallalausum rekstri, öfugt við það sem hér hefur tíðkast síðastliðin ár, að hér sé ekki verið að eyða tíma í einhvers konar sýndartöflur sem ekki standast svo í raunveruleikanum. Hér erum við ekki í fjárlagavinnu. Ég hef vissulega ekki tekið þátt í þessum umræðum áður en ég veit það þó að við erum ekki að ræða fjárlög, við erum að ræða fjármálastefnu. Hér er búið að útfæra þessa potta sem ráðherrar munu vinna eftir (Gripið fram í.) og útfæra síðan. Næsta skref á dagskrá er að fá einmitt þessa fagráðherra og eiga samtal við þá um það hvernig þeir sjá sína sýn varðandi þessa fjármálaáætlun og það er bara ljúft og skylt að fara í þá umræðu næst.

Ég vil að lokum þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir að færa sannfærandi rök fyrir því að hér eru engir biðleikir í gangi.