156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:33]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Við erum hér aftur saman komin í dag að ræða um formið en ekki efnið í því sem liggur (Gripið fram í.) hérna fyrir þessum þingsal. (Gripið fram í.) — Jú, hér er verið að agnúast út í það að formið á framsendum eða útgefnum (Gripið fram í.) bókum í fjármálaáætlun sé ekki með þeim hætti (Gripið fram í.) sem stjórnarandstöðunni líkar. Ég get bara sagt það að ég gat tekið þátt í umræðum um fjármálaáætlun án þess að notast við umræddrar töflur og ég vissi vel hvað ég átti að segja. (Gripið fram í: Auðvitað.) Það er bara þannig að þið, hv. þingmenn, eigið að nota, hv. þingmenn eiga að nota sitt pólitíska leiðarljós og sína pólitísku sannfæringu til að meta hvort sú forgangsröðun sem hér kemur fram sé þeim að skapi eða ekki. Að setja út á það (Gripið fram í.) að hér séu ekki einhverjar töflur, (Gripið fram í: … það sem kemur fram.) að hér séu ekki einhverjar töflur sem gefa í skyn hvor einhver markmið náist eða ekki — hér er til staðar vettvangur til þess að eiga mjög heilsteypt og gott samtal við ráðherra þar um. Það ætla ég að gera og ég hvet ykkur til þess að gera það sama.