156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:34]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Það er fullkominn misskilningur hjá hv. þingmanni að halda því fram að þetta snúist eitthvað um form. Af hverju halda menn að það hafi verið sett lög um opinber fjármál? Af hverju halda menn að það hafi verið gert? (Gripið fram í.) Af hverju halda menn að það hafi verið gert? Það var til þess að auka skýrleika, bæta áætlanagerð, auka gagnsæi, og stjórnvöldum og ríkisstjórn var gert skylt að koma með miklu meiri upplýsingar heldur en áður. Þetta var stórt skref, algjört framfaraskref. Og einhverjar töflur eru ekki bara einhverjar töflur. Þær eru til þess að við getum tekið málefnalega umræðu út frá staðreyndum í staðinn fyrir að menn séu að hjala eitthvað um hvað þeir halda og vilja o.s.frv. Mér finnst vera að dragast hérna upp — og ég hélt að þetta væri bara einhver handvömm og menn myndu vilja setjast niður og reyna að finna einhvern flöt á þessu — að menn vilja ekki fá umræðu um staðreyndir mála, um það hvað á að gera, og ætla að fara hér (Forseti hringir.) í það minnsta einn og hálfan áratug aftur í vinnubrögðum á hinu hv. Alþingi.