156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:36]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta eru afar áhugaverðar umræður sem hér eru að skapast. Ég verð að segja að það kom mér verulega á óvart, ég hélt að það væri hagur allra sem hér eru inni að fá þetta mál á hreint og það væri auðfúst að fá hlé til að leiða þetta mál í jörð. Ég bara trúi ekki öðru en að menn geri hér stutt fundarhlé og við setjumst niður og reynum að ræða okkur aðeins betur niður í þessu verkefni. Ég trúi ekki að mönnum liggi svo á að það sé ekki hægt að stoppa hér umræðuna í einhvern stuttan tíma til að ná einhverri sátt. Og formið en ekki efnið — virðulegur forseti, það er nú kannski vegna þess að efnið vantar. Um það snýst málið. Um það snýst málið, virðulegur forseti. Það er ekki efnið sem við þurfum til að eiga hér innihaldsríkt og uppbyggjandi samtal við fagráðherrana. (Forseti hringir.) Það er ekki hér inni. Það er það sem vantar. Við getum fylgt okkar pólitíska nefi, (Forseti hringir.) en við þurfum að vita hver stefnan er þannig að við getum átt samtalið um hana. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)