fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Mér áskotnaðist hér fyrir tilviljun útgáfa síðasta árs og ársins þar á undan. Ef einhver heldur að þetta séu bara einhverjar töflur sem duttu út á milli ára þá er þetta munurinn: Eldri útgáfan er 422 blaðsíður en þessi hér er 198. Það munar þarna 224 blaðsíðum og efnið á þessum 224 blaðsíðum var birt á netinu í fyrra. Bara svona til þess að ýta því til hliðar að þetta snúist bara um einhverjar stakar töflur. En það sem mér þykir kannski áhugaverðast er að hæstv. fjármálaráðherra telji birtinguna hafa verið með sama hætti í ár og í fyrra. Þar held ég að hæstv. ráðherra þurfi að eiga orð við starfsmenn sína í ráðuneytinu, ef þetta eru þær upplýsingar sem hæstv. ráðherra fékk, því að ég dreg það ekki í efa að hann tali hér bara á þeim nótum sem hann skildi málið. En allar þær upplýsingar sem komu fram á þessum 224 blaðsíðum fyrir tveimur árum síðan birtust á netinu fyrir ári síðan og eru okkur þingmönnum ekki aðgengilegar núna. Það er það sem um er að ræða hér í dag. Þess vegna biðjum við þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna um að fá að eiga orðastað við hæstv. forseta hér á meðan stutt fundarhlé yrði tekið.