156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:39]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Bara til þess að setja hér punktinn yfir i-ið, þar sem mér sýnist flestir vera búnir að tjá sig, þá erum við að tala hérna um markmið og mælikvarða í fjármálaáætlun sem ný ríkisstjórn er að setja fram. Hér eru einhverjir með hugmyndir um að við í stjórnarandstöðunni getum talað út frá því að þrátt fyrir að það skorti markmið og mælikvarða þá eigum við að hafa einhverja pólitíska sannfæringu í málinu. Þetta er frekar rýrt, komumst til botns í því hvort þetta er eðlileg framsetning. Við munum þá bara þurfa að taka því. Ef veruleikinn er sá að eftir einhverja mánuði birtist mælaborð eða eitthvað slíkt þá auðvitað þarf ég að taka umræðuna út frá þeim upplýsingum sem koma fram í því mælaborði á þeim tíma. En það er ekki komið fram þannig að það verður mjög erfitt að halda áfram í umræðunni. Ég hvet forseta til að gera hlé á fundi svo að við komumst til botns í málinu.