156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:40]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég verð að segja að mér finnst þetta dapurt. Mér finnst dapurt hvernig stjórnarliðar einhvern veginn yppa öxlum, koma hér upp í pontu og gera lítið úr Alþingi Íslendinga og gera lítið úr þeirri vinnu sem við sem erum kjörin til að sinna hér ákveðnu hlutverki í almannaþágu sinnum. Við í stjórnarandstöðu ætlum svo sannarlega að vinna af heilindum fyrir þjóð okkar.

Í morgun sagði hæstv. fjármálaráðherra Daði Már Kristófersson að mælikvörðum hafi verið slengt inn í fjármálaáætlun, að það hafi verið ákvörðun fyrirrennara minna. Ég get ekki annað en gagnrýnt það að hér er ljóst að það á ekki að vera í neinu samstarfi við þingið við þessa vinnu heldur á að rífa þetta í gegn. Þetta kemur mér fyrir sjónir sem metnaðarlaus vinna.

Ég vil fá að segja að t.d. í kafla 9, um almanna- og réttaröryggi, (Forseti hringir.) er ein setning: „Mikilvægt er að innviðir samfélagsins, þ.m.t. lögregla, almannavarnir og Landhelgisgæsla, séu í stakk búnir til að mæta hvers kyns hættum.“ Hér finnið (Forseti hringir.) þið þetta á 20 blaðsíðum frá því í fyrra, 20. (Forseti hringir.)

Ég hvet forseta til að gera hlé á fundi og fá úr þessu skorið.

(Forseti (KGH): Forseti vill hvetja þingmenn til að virða tímamörk ræðu sem er ein mínúta undir liðnum fundarstjórn forseta.)