fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég taldi hv. þingmenn hafa gert ágætlega grein fyrir mikilvægi þess að taka þetta mál fyrir, gera hlé á þingfundi og tryggja það að Alþingi fylgdi lögum og ég tek undir þá kröfu, sem ætti að vera sjálfsögð. En svo þegar ég hlustaði á hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur gera athugasemd við fundarstjórn forseta þá rann upp fyrir mér ljós. Hv. þingmaður hélt því fram að hér væru þingmenn stjórnarandstöðunnar að ræða formið en ekki innihaldið. Þessar athugasemdir, herra forseti, snúast akkúrat um að það vanti innihaldið og að við þurfum innihald til að geta rætt málið. Svo segir hv. þingmaður: Ég veit alveg hvað ég á að segja. — Já, já, greinilega, það er búið að segja hv. þingmönnum stjórnarmeirihlutans hvað þeir eiga að segja. En það vantar innihaldið. Þessi ríkisstjórn, herra forseti, (Forseti hringir.) virðist ekki gera sér grein fyrir muninum á umbúðum og innihaldi.