fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé ágætt að ég komi hérna upp á milli hv. þm. Sigmundar og hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur svona rétt á meðan menn róa sig.
Virðulegur forseti. Mér finnst við vera komin á ákveðna endastöð hvað þetta varðar. Það getur ekki annað verið en að þau gögn sem við erum búin að fá afhent, það hlýtur að vera ákveðinn grunnur þar á bak við sem hlýtur að vera á netinu, eða ekki á netinu heldur í rafrænu formi í fjármálaráðuneytinu. (Gripið fram í: Geymslu.) Það getur ekki annað verið en að þessi ágæta bók sem við höfum fengið afhenta byggi á einhverjum gögnum þannig að það hlýtur að vera tiltölulega einfalt mál að kalla eftir þessum gögnum. Því óska ég þess, virðulegur forseti, að þú gerir hér stutt hlé á fundi og við komumst til botns í þessu máli.