156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:45]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Það er hér beðið um stuttan fund. Við erum bara komin á þann fund þannig að við getum verið svona nokkuð hugsi yfir því hvernig við viljum vinna á þessu þingi. Ég fer ekkert ofan af því að þessi umræða er um formið frekar en efnið. Það er bara þannig. Þegar kemur að því að horfast í augu við það þá verður auðvitað sannleikanum hver sárreiðastur. Og það hvernig fólk ber sig að í fjármálaumræðu — ég vil þá bara vekja athygli hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á því að ég sat ekki í ríkisstjórn í fyrra, ég sat í stjórnarandstöðu. Samt tókst mér einhvern veginn að fara í mjög konkret góða umræðu um efni fjármálaáætlunar án þess að notast við … (Gripið fram í.) án þess að horfa til þeirra gagna sem voru á netinu. (Gripið fram í: Það skýrir ýmislegt.) — Já, já. Vitið þið það, krakkar, þið getið þetta. Ég ætla bara að hvetja ykkur til góðra verka, en gerum það fyrir okkur, við skulum bara tala um pólitíkina. Notið ykkar pólitísku sannfæringu.