fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Jafnt og þétt skil ég þessa ríkisstjórn betur. Hún gerir kröfu til þess í rauninni að við ræðum málin án þess að kynna okkur innihaldið af því að innihaldið gæti verið skaðlegt pólitískt séð fyrir ríkisstjórnina — við vitum það ekki, við fáum ekki að sjá innihaldið. Til að mynda eru hér kynnt mikil áform um sparnað á næstu fimm, sex árum, 110 milljarðar — var það ekki, herra forseti, 110 milljarðar? En það bara er ekkert útskýrt hvernig eigi að spara þessa 110 milljarða. Það á reyndar að mestu leyti að gerast á næsta kjörtímabili, held ég. En það þarf ekkert að útskýra það fyrir þingmönnum. Það kemur þeim ekkert við hvernig þessi sparnaður á nást. Menn eiga að vera glaðir með 110 milljarða sparnað. Svo þegar menn hér kalla eftir því að lögum sé fylgt og þingmenn séu upplýstir um hvað standi raunverulega til þá er bara skammast yfir því að menn séu að tala um formið frekar en innihaldið.