156. löggjafarþing — 25. fundur, 3. apr. 2025.
fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
264. mál
Herra forseti. Ég reyndi að sitja á mér. Ég reyndi raunverulega að sitja á mér en ég bara gat það ekki. Hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir ætlast til þess, hún hreinlega rökstuddi það að hún ætlast til þess að ég móti mér skoðanir og taki svo í framhaldi afstöðu byggða á upplýsingum sem ég hef ekki aðgang að. Það er ekki hægt að skálda þetta.