156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:48]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Öðruvísi mér áður brá en að það væri raunverulega rætt hér í þessum sal að umræða um fjármálaáætlun ætti að vera einhvers konar köttur Schrödingers sem annaðhvort er eða er ekki, bara eftir atvikum. Ég held að það sé algerlega augljóst að það sem hér um ræðir af hálfu hv. þingmanna stjórnarandstöðunnar er að okkur vantar upplýsingar til þess að taka umræðu þá sem á að vera hér á dagskrá á eftir, í kvöld og á morgun. Það er mergur málsins. Ég er hreint út sagt svolítið hvumsa, herra forseti, að þessi umræða hafi verið svona löng. Ég gaf mér og fannst augljóst að það yrði strax brugðist við mjög einfaldri yfirvegaðri ósk frá þingflokksformönnum stjórnarandstöðunnar um að gert verði stutt hlé á þessum þingfundi svo að forseti þingsins geti rætt við okkur um hvernig verði gerð bragarbót á svo að við getum rætt efni það sem á að vera á dagskrá hér í dag, í kvöld og á morgun. Annars, herra forseti, er augljóst að við höfum ekkert hér að ræða, þannig að ég treysti á að það verði stigið inn í þetta mál sem fyrst.