156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:50]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Forseti. Í fjarveru utanríkisráðherra geri ég hér grein fyrir þeim málefnasviðum sem heyra undir utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytið; utanríkismál og þróunarsamvinnu. Staðan í heiminum krefst víðtækrar hagsmunagæslu hvort sem horft er til varnar-, öryggismála eða viðskiptahagsmuna. Mikilvægt er að standa með grundvallargildum utanríkisstefnu Íslands, mannréttindum, lýðræði og virðingu fyrir alþjóðalögum. Í öryggis- og varnarmálum er lögð áhersla á að vera trúverðugur bandamaður, m.a. með því að hafa kerfi, þekkingu og aðstöðu til þess að eiga virkt samstarf við bandalagsríki og leggja af mörkum til eigin varna, m.a. með eftirliti með mikilvægum innviðum.

Utanríkisþjónustan sinnir hagsmunagæslu í viðskiptum í nánu samstarfi við atvinnulífið. Þá er rödd Íslands og framlag til mannréttindamála, þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoðar brýnni en oftast áður. Þetta endurspeglast í vaxandi umfangi bæði varnartengdra verkefna og þróunarsamvinnu á tímabilinu. Ísland er og þarf að vera virkur þátttakandi í samstarfi og verkefnum sem miða að því að auka öryggi í okkar heimshluta. Liður í því að sýna Úkraínu áfram samstöðu vegna grimmilegs árásarstríðs Rússa er að framlög til stuðnings við Úkraínu muni aukast. Þau eru þýðingarmikið framlag til öryggis- og varna Íslands og þeirra gilda sem við byggjum á, þar á meðal virðingu við fullveldi þjóða.

Varðandi framlög til einstakra málefnasviða er gert ráð fyrir að þróun framlaga til málefnasviðs 4, utanríkisþjónustu, endurspegli þessar áherslur og aukist á tímabili áætlunar frá fjárlögum 2025 úr 19,2 milljörðum í 21,9 milljarða árið 2030 eða sem nemur um 14%. Hér undir er gert ráð fyrir auknum framlögum vegna breyttrar stöðu öryggis- og varnarskuldbindinga Íslands. Framlög til varnarmála verði aukin um 3 milljarða kr. strax á næsta ári og síðan um milljarð til viðbótar árið 2027. Drjúgum hluta þessarar aukningar eða liðlega 2 milljörðum verði varið til stuðnings við Úkraínu og hækkar stuðningurinn úr 1,5 milljörðum í 3,6 milljarða.

Þá er gert ráð fyrir að framlög til annarra varnartengdra verkefna aukist um liðlega 1,2 milljarða á næsta ári og 1 milljarð á árinu 2027. Ef horft er til alls tímabilsins er gert ráð fyrir að framlög til málaflokksins aukist um 2,9 milljarða eða 42% með fyrirvara um að það verði af tilfærslu hluta Úkraínustuðnings milli málefnasviða, eða 1,5 milljarða eins og gert hefur verið ráð fyrir að verði árið 2028. Annars næmi hækkunin 64,4%.

Aðrar hækkanir sem gert er ráð fyrir vegna verkefna sem falla undir málefnasviðið eru þær helstar að gert er ráð fyrir að samningsbundin framlög vegna fjölþjóðasamstarfs hækki um liðlega 500 millj. kr. og endurspegli framlög til reksturs ýmissa stofnanna sem hafa aukist í takt við hagvöxt.

Forseti. Aðhaldsaðgerðir munu skila hagræðingu í rekstri sem nemur um 1,2 milljörðum á ársgrundvelli eða 6% af rekstri. Gert er ráð fyrir að framlög til málefnasviðs 35, alþjóðlegrar þróunarsamvinnu, hækki úr rúmlega 15 milljörðum kr. árið 2025 í rúmlega 23,5 milljarða árið 2030 eða um 57%. Við lok áætlunarinnar er gert ráð fyrir að opinber þróunaraðstoð nemi 0,39% af vergum þjóðartekjum samanborið við 0,34% árið 2024. Drjúgum hluta framlaganna verður varið til mannúðaraðstoðar. Öryggi okkar og sjálfstæði byggist á traustu alþjóðakerfi og virðingu fyrir alþjóðalögum, sjálfstæði og fullveldi ríkja og friðhelgi landamæra. Innrás Rússlands í Úkraínu og önnur hörmuleg átök, líkt og fyrir botni Miðjarðarhafs, sýna að við þurfum sífellt að hlúa að alþjóðlegu samstarfi, standa vörð um hagsmuni Íslands og leggja okkar af mörkum til verkefna sem stuðla að friði og stöðugleika.