fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég vil nota tækifærið og segja að mér þykir leitt að sjá hvað við erum fá í salnum. Það væri eðlilegt að við nýttum öll færið hérna til að eiga í orðaskiptum við þá ráðherra sem óskað er eftir upplýsingum frá fyrst þetta snýst í lok dags um efnið. En hingað erum við komin og erum að fást við fjármálaáætlun í utanríkismálaflokknum mikilvæga sem verður illu heilli bara meira „relevant“ eftir því sem tíminn líður.
Ég vildi nota tækifærið og spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd utanríkisráðherra aðeins um framlög til varnartengdra verkefna og þeirrar staðreyndar að við ætlum að auka þau um 4 milljarða á tímabilinu fram til ársins 2008. Drjúgum hluta þessarar aukningar verður varið í aukinn varnartengdan stuðning við Úkraínu, eins og við þekkjum, og er gert ráð fyrir að um 1,5 milljarðar komi til lækkunar í varnartengdan stuðning við Úkraínu árið 2028, þ.e. að lækkun verði um 1,5 milljarða. Hann fari þess í stað undir hatt alþjóðlegrar þróunarsamvinnu til mannúðarstuðnings og uppbyggingar í Úkraínu með fyrirvara um framvindu átaka á svæðinu.
Mig langaði til að nota tækifærið og spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra ögn út í útfærsluna á þessu tilteknu ári. Hvers vegna ætlum við að færa þetta undir þróunaraðstoð á árinu 2028 sem nemur 1,5 milljörðum í stað þess að varnartengd verkefni verði látin ná utan um þennan málaflokk allt það tímabil sem fyrirliggjandi fjármálaáætlun fjallar um?