156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[16:57]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Nú er það svo að þróun þessara útgjaldaliða hefur verið á þá leið að þeir hafa verið í mjög mikilli endurskoðun í ljósi mjög hraðra og mikilla breytinga sem hafa átt sér stað á undanförnum misserum í okkar heimshluta. Það hefur kallað á endurskilgreiningu áherslna sem er nauðsynlegt að svigrúm sé til að framkvæma með sérstaka áherslu á varnarþáttinn. Það hefur verið þannig um nokkurt skeið að umfang varnarútgjalda Íslands hefur ekki verið stórt. Þörfin á endurskoðun þeirra fjárframlaga er mjög aðkallandi en henni verður að mæta í ljósi þess að undir þetta málefnasvið heyra einnig önnur mikilvæg málefni. Það er hárrétt sem fram hefur komið að framlög okkar til þróunarmála eru auðvitað gríðarlega mikilvæg, sérstaklega í ljósi samdráttar sem hefur orðið í framlögum sumra bandalagsþjóða okkar eins og Bandaríkjanna.