fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég get bara tekið undir þá sýn sem hann lýsir á hlutverki okkar í alþjóðasamfélaginu, hvort sem það er í gegnum stuðning til þeirra sem þurfa að sitja undir ólögmætum innrásum eða þeirra sem koma til með að þjást verulega vegna yfirvofandi niðurskurðar í málaflokki þróunarsamvinnu á heimsvísu.
Ég ætla hins vegar bara að undirstrika það vegna þess að mér finnst það mikilvægt, mér finnst það mikilvægt vegna þess að hér á landi og hér í þinginu er sem betur fer svo gott sem þverpólitískur stuðningur við það að við eigum að styðja við Úkraínu og við eigum að gera það myndarlega. En þess vegna finnst mér mjög mikilvægt að það sé — og ég ætla eiginlega bara að ítreka spurninguna ef það er í lagi, að við verðum að vita hvers vegna þetta fer undir hatt þróunarsamvinnu á síðasta árinu í fjármálaáætluninni árið 2028 þar sem lækkunin verður 1,5 milljarðar á varnartengdum stuðningi til Úkraínu þar sem verður á móti sambærileg hækkun á stuðningi til alþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Ég held að ef þessi skýrleiki er til staðar í þessari fjármálaáætlun auki það líkurnar á því að við veitum áfram þann mikilvæga og verðmæta stuðning sem við eigum að sýna þeim sem heyja stríð fyrir frelsi í útjaðri heimsálfunnar. Ég legg hins vegar áherslu á það og vil bara að það komist algerlega hreint hér til skila að við eigum ef eitthvað er að gefa í í formi þróunarsamvinnu og þróunaraðstoðar vegna þess að það er gífurlega mikilvæg fjárfesting í sífellt ófriðlegri í heimi. Ég fagna því sérstaklega, eins og glögglega má átta sig á í þeim umfjöllunum sem eru um þennan málaflokk í fjármálaáætlun, að við ætlum ekki að láta okkar eftir liggja í því.