fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir hennar spurningu. Nú er það er þannig að skilgreining þessara útgjaldaliða þarf ekki endilega að endurspegla áherslubreytingar hjá utanríkisráðuneytinu. Það er áfram, eins fram kemur í áætluninni, markmið okkar að styðja dyggilega við þróunaraðstoð og vinna að því að ná því hlutfalli upp í það sem ríki miða að jafnaði við í kringum okkur. En á sama tíma, eins og ég vék að áðan, þá hafa orðið mjög hraðar og ófyrirsjáanlegar breytingar í öryggismálum í okkar heimshluta og það er útilokað annað en við bregðumst við því með breyttum áherslum í fjármálaáætlun.