fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess að Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna stendur nú frammi fyrir miklum breytingum á áherslum og verkefnum á alþjóðavettvangi vaknar spurning um hvaða áhrif það getur haft á önnur ríki sem starfa á sviði þróunarsamvinnu, þar á meðal Ísland. Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna hefur verið einn stærsti einstaki fjármögnunaraðili í þróunaraðstoð í heiminum og breytingar þar á bæ kunna að kalla á aukinn stuðning annarra ríkja við ákveðin svæði, sérstaklega í viðkvæmum ríkjum.
Í þessu samhengi vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Telur hann að Ísland þurfi að undirbúa sig undir að axla stærra hlutverk í tvíhliða eða marghliða þróunarsamvinnu á komandi árum vegna þessara breytinga? Og ef svo er, hefur verið gert ráð fyrir slíku í fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030, bæði hvað varðar fjármuni og mannafla, svo að Ísland geti brugðist við aukinni ábyrgð og viðhaldi trúverðugleika sínum sem ábyrgt þróunarsamvinnuríki?