fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þó svo að við séum að ræða um fjármálaáætlun snýst þróunarsamvinna ekki aðeins um fjármagn heldur líka um gildin okkar. Hún snýst um að standa með þeim sem minnst mega sín, að verja mannréttindi og stuðla að stöðugleika og friði. Þegar stærri aðilar stíga til hliðar verðum við að stíga fram. Í stað spurningar vil ég hvetja hæstv. utanríkisráðherra og ráðuneytið eindregið til að sýna festu, framsýni og dyggð í þessu mikilvæga verkefni. Við eigum að vera fyrirmynd, ekki aðeins í orði heldur einnig í verki.