156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[17:16]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Það er mér sönn ánægja að gera grein fyrir þeim málefnum og verkefni sem heyra undir ráðuneyti mitt, félags- og húsnæðismálaráðuneytið, í fjármálaáætlun 2026–2030. Við sýnum hér að markmið okkar um að taka betur utan um fólkið er sannarlega komið til framkvæmda með þessari nýju ríkisstjórn. Áætlunin markar vatnaskil fyrir eldra fólk og öryrkja. Tvær umfangsmiklar breytingar verða fjármagnaðar með áætluninni auk kerfisbreytinga sem nýtt örorkulífeyriskerfi felur í sér. Greiðslur almannatrygginga eiga að fylgja betur kjaraþróun á vinnumarkaði með tengingu við launavísitölu. Áfram verður tryggt að breytingin verði aldrei minni en sú hækkun sem verður á verðlagi. Þetta er risastórt mál og stórkostlegt að sjá það verða að veruleika. Kjaragliðnun almannatrygginga og launa verður með þessu loksins úr sögunni og fólk um allt land mun njóta góðs af. Breytingin snertir alla sem fá greiðslur frá almannatryggingum, alla sem fá örorkulífeyri, ellilífeyri eða endurhæfingarlífeyri. Þetta á við um 65.000 einstaklinga.

Í öðru lagi er gert ráð fyrir að almennt frítekjumark ellilífeyrisþega hækki í þrepum í 60.000 kr. á mánuði. Í dag má ellilífeyrisþegi hafa um 438.000 kr. í tekjur á ári án þess að ellilífeyrisgreiðslur hans byrji að lækka. Þegar breytingarnar verða að fullu komnar til framkvæmda mun viðkomandi hins vegar geta haft um 720.000 kr. í tekjur á ári án þess að greiðslurnar lækki.

Annað mikilvægt mál úr stefnuyfirlýsingu sem kemst til framkvæmda strax á næsta ári er að þá munu eldri öryrkjar, sem hefðu átt rétt á aldursviðbót en ekki fengið, í nýju örorkulífeyriskerfi fá hana greidda með ellilífeyri sínum út ævina. Þeir munu því ekki hrapa eins í tekjum við það eitt að ná 67 ára aldri og nú hefur verið.

Í þriðja lagi er fjármagn í fjármálaáætlun vegna nýs örorkulífeyriskerfis sem tekur gildi nú í september og verður það að fullu fjármagnað á næsta ári þegar rúmir 14 milljarðar kr. bætast við. Meginstefið í kerfisbreytingunni er: Bætt kjör, áhersla á virkni og lífsgæði með samfelldri framfærslu sem byggir á samvinnu þjónustukerfa, heilsugæslu, endurhæfingar og vinnumarkaðsaðgerða. Þannig verður komið í veg fyrir að fólk falli í sífellu milli skips og bryggju og fái ekki stuðning við hæfi frá hinu opinbera.

Herra forseti. Þetta er ekki allt, við ætlum að gera meira. Við ætlum að taka utan um fólkið okkar. Sem dæmi þá aukast framlög í endurhæfingu um 4,3 milljarða kr. á næsta ári, um 350 millj. kr. bætast við vinnusamninga og vinnumarkaðsaðgerðir vegna fólks með skerta starfsgetu.

Húsnæðismálin hafa verið mér ofarlega í huga eins og fleirum í ríkisstjórninni og þar höfum við blásið til þjóðarátaks, hvorki meira né minna. Við viljum að öllum í þessu samfélagi sé tryggt öruggt og gott húsnæði, ekki síst þeim sem minnst mega sín. Margir eiga virkilega erfitt með að ná endum saman vegna mikils húsnæðiskostnaðar og koma þarf böndum á leigumarkaðinn, ekki síst þessa skammtímaleigu. Þá þarf að stórefla framboðshliðina. Við munum einfaldlega einfalda regluverk. Við munum leggja upp úr góðu og öflugu samstarfi við sveitarfélögin. Ég hef sagt, og ég stend við það, að við erum að ráðast í stórátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila.

Ein af helstu áskorunum samfélagsins er fjölgun aldraðra en árið 2040 verða einstaklingar 67 ára og eldri orðnir 26.000 fleiri en þeir eru í dag. Þetta eru miklar breytingar sem bregðast þarf hratt og örugglega við. Við ætlum að ganga rösklega til verks núna til að minnka biðlistana fyrir fullorðna fólkið okkar. Í framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarrýma 2024–2028 er gert ráð fyrir að alls verði 934 hjúkrunarrými tekin í notkun á næstu þremur til fjórum árum og við ætlum ekki bara að standa við þær áætlanir heldur ætlum við að gera gott betur.

Ríkisstjórnin ætlar að tryggja afkomuöryggi fólks í fæðingarorlofi og við ætlum að bæta þar sérstaklega við hag tekjulægri foreldra. Fæðingarstyrkir námsmanna og fólks utan vinnumarkaðar verða hækkaðir. Hagur fjölburaforeldra verður bættur og þeirra sem veikjast í kjölfar fæðingar eða á meðgöngu. Framlög til Fæðingarorlofssjóðs aukast um 6,5 milljarða kr. á tímabili áætluninni áætlunarinnar. Einnig á að bæta hag foreldra sem missa maka með því að tryggja þeim rétt til sorgarleyfis. Aðkallandi er að gera úrbætur í málefnum einstaklinga sem dæmdir hafa verið til öryggisvistunar. Þjónusta við þennan hóp hefur hingað til verið ómarkviss og brotakennd og skortur verið á sérhæfðum búsetuúrræðum. Byggja á nýtt húsnæði til að mæta þörfum þessa fólks og auka rekstrarframlag um 2 milljarða kr. árlega.

Eins og þið heyrið eru verkefnin ærin og þola enga bið.