fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Hæstv. forseti. Þessu er alltaf lofað fyrir kosningar en alltaf svikið. Þetta er, með leyfi forseta, setning sem undirrituð og fleiri heyrðu oft í kosningabaráttu í lok síðasta árs þegar rætt var við eldra fólk um lífeyrismál og almannatryggingar. Nú er verið að ganga til verka og leiðrétta þá kjaragliðnun sem hefur átt sér stað milli lífeyris og launa. Ríkisstjórnin hefur afgreitt frumvarp frá sér sem felur þetta í sér og sést glöggt á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar hverjar áherslurnar eru á félags- og tryggingamál, á þetta félagslega réttlæti sem hefur svo oft verið svikið. Já, það kostar pening. Þetta réttlætismál er fjármagnað ásamt uppbyggingu innviða og fjárfestingu í þeim með skýrri forgangsröðun, réttlátri gjaldtöku og hagræðingaraðgerðum sem miða að því að fara betur með almannafé í stað óútfærðs aðhalds upp á marga tugi milljarða sem oft kemur einmitt niður á innviðum, á nauðsynlegu viðhaldi og fjárfestingu sem við þurfum á að halda til að halda velferðarkerfi okkar gangandi.
Ég vil því spyrja ráðherra um, auk mikilvægis tengingar fjárhæða almannatrygginga við launavísitölu, mikilvægi almenns frítekjumarks ellilífeyris og nýs örorkulífeyriskerfis, um mikilvægi fjárfestingar í innviðum, í þessu tilfelli hjúkrunarheimilum, sem ekki er aðeins réttlætismál fyrir alla þá einstaklinga sem bíða heima eftir úrræði, bíða eftir heimili við hæfi, en jafnframt fyrir heilbrigðiskerfið því að skortur á hjúkrunarrýmum kostar heilbrigðiskerfið og samfélagið gríðarlegar fjárhæðir. Þar hefur skortur á fjárfestingu haft gríðarlega neikvæðar afleiðingar.