fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og segi að ég get tekið undir hvert einasta orð. Það er löngu orðið tímabært að við grípum til raunverulegra aðgerða til að taka utan um þann hóp í samfélaginu sem virkilega þarf á aðstoð okkar að halda. Og þegar hv. þingmaður nefnir þörfina á átaki í uppbyggingu á hjúkrunarrýmum þá liggur það alveg ljóst fyrir að þetta er búið að vera stigvaxandi neikvæð þróun í þá átt að hér hafa biðlistar lengst endalaust eftir úrræðum fyrir fullorðna fólkið okkar. Við sjáum að með þessum aðgerðum sem nú eru á borði míns ráðuneytis og hjá hagaðilum sem þarna koma að, einstaklingum jafnt sem fyrirtækjum sem vilja koma að því að byggja upp hjúkrunarrými með okkur og koma fólkinu okkar í skjól, þá munum við losa um þennan flöskuháls inni á Landspítala þar sem hundruð einstaklinga hafa þurft að bíða eftir úrræðum, og nú sennilega hátt í 100 sem þegar eru læstir inni í þessu dýrasta úrræði á landinu, að þurfa að vera fastir inni á Landspítala. Þannig að um leið og við náum að losa um þann flöskuháls þá munum við sjá þetta jákvæða flæði út í allan þjóðarlíkamann þar sem við munum losa um rými inni á Landspítalanum þar sem legurýmum mun fjölga sem því nemur og álag á starfsfólk mun líka minnka sem því nemur. Það er því ólýsanlega jákvætt að fá að taka þátt í þessari uppbyggingu og öllu því jákvæða sem ég er að finna að er að eiga sér stað með nýrri og frábærri ríkisstjórn, þessari nýju frábæru verkstjórn.