fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Allar þær aðgerðir sem verið er að ráðast í núna fyrir fjölskyldurnar, heimilin og foreldrana miða að því að bæta kjör og bæta hag. Hæstv. fjármálaráðherra svaraði því ágætlega hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma í morgun hvaða áhrif þessi niðurfelling á samsköttun myndi hafa á afkomu efnaminni fjölskyldna. Það liggur algerlega fyrir samkvæmt öllum fyrirliggjandi gögnum að það mun ekki hafa áhrif á hana nema, eins og hv. þingmaður bendir réttilega á, um kannski 5% allra, sem eru meira og minna tekjuháir fyrir. Ef ég skil það rétt þá skildist mér að heimildin til að nýta ónýttan persónuafslátt á milli hjóna væri enn þá á teikniborðinu. Svoleiðis var minn skilningur og ég vona a.m.k. að hann sé réttur þannig að ég sé ekki að fara með eitthvert bull. En það er í rauninni það sem skiptir mestu máli; þegar annað foreldrið er heima og nýtir ekki sinn persónuafslátt þá þótti mér það skipta allra mestu máli að viðkomandi gæti fengið að nýta vannýttan persónuafslátt hins aðilans. En ég treysti því sem kemur fram hjá hæstv. fjármálaráðherra og ég treysti þeim gögnum sem við vorum með á borðinu þegar við vorum að mynda þessa nýju frábæru ríkisstjórn. Þannig að ég ber engan ugg í brjósti um að þetta sé að fara að valda búsifjum fyrir efnaminnstu fjölskyldurnar og fólkið okkar sem við erum svo sannarlega að reyna frekar að styrkja og efla heldur en hitt.