fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. félagsmálaráðherra fyrir framsöguna um fjármálaáætlun um það er lýtur að hennar málefnasviðum, sem eru nokkur. Það er, eins og hefur komið fram í umræðum um fundarstjórn forseta, kannski ekki auðvelt fyrir þingmenn að glöggva sig á áhersluatriðum hvað varðar málaflokkana sem eru undir hverju málefnasviði en það má svo sem alveg að reyna að halda uppi hálfgildings vitrænum samræðum um þessi málefnasvið. Þau eru nokkur sem hæstv. félagsmálaráðherra fer fyrir en það flækir líka málið ef það eru fleiri hæstv. ráðherrar sem sameinast um þessi málefnasvið að mörgu leyti.
Mig langaði kannski að drepa hérna á einu málefnasviði sem er málefnasvið 27, örorka og málefni fatlaðs fólks. Þar er gert ráð fyrir hækkun útgjalda í rammanum um 19 milljarða en á móti er gert ráð fyrir lækkun vegna ýmiss konar hagræðingar um 6,8 milljarða. Ég vildi vita hvort hæstv. félagsmálaráðherra gæti útskýrt örlítið í hverju hagræðingin upp á 6,8 milljarða felst þannig að það er samtals hækkun upp á 12,3 milljarða. Þetta er nú einmitt það sem er bagalegt við framsetningu fjármálaáætlunarinnar á þessu ári, í fyrsta sinn, að það vantar í fyrsta sinn alla nánari útlistun á markmiðum ráðherranna á sínum málefnasviðum.