156. löggjafarþing — 25. fundur,  3. apr. 2025.

fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.

264. mál
[18:07]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hæstv. félagsmálaráðherra að hafa áhuga á því að afkoma fólks sé viðunandi. En ég hef um leið líka mikinn áhuga á því að afkoma ríkisfjármála sé viðunandi og að menn geti staðið við allt sem menn lofa, menn lofi ekki upp í ermina á sér, menn geti staðið við það sem eru hin pólitísku viðmið. Og ekki bara það heldur líka að ríkisfjármálin séu þannig að þau séu sjálfbær til lengri tíma en sem nemur lífi einnar ríkisstjórnar.

Mig langaði að spyrja hæstv. félagsmálaráðherra út í það sem hún nefndi hér, sem er sú grundvallarbreyting á því að stefnan er að tengja þróun örorkubóta við þróun launavísitölu. Ég hef nokkrar áhyggjur af því að kostnaðurinn af þeirri fyrirætlan liggi ekki alveg fyrir enda vita menn ekki hver þróun launavísitölu verður næstu árin. Hún getur sveiflast mjög. Þess vegna spyr ég hæstv. félagsmálaráðherra, svona í ljósi sérstakra markmiða þessarar ríkisstjórnar, sem hefur verið lýst þannig að það eigi að auka fyrirsjáanleika í ríkisfjármálunum, hvort þetta gæti truflað þau markmið, af því að ég get ímyndað mér að kostnaður af launavísitölubindingu örorkubóta gæti sveiflast frá því að vera ekkert upp í jafnvel 10 milljarða, sem mér finnst alveg óásættanleg óvissa frá sjónarhóli ríkisfjármálanna. Svo þess utan vil ég nefna það að auðvitað eru útgjöld til allra málaflokka háð afgreiðslu fjárlaga á hverju ári. En ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hafi ekki áhyggjur af því að þetta geti verið ósamrýmanlegt.