fjármálaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Hún hittir naglann beint á höfuðið, þetta er náttúrlega ófyrirséð. Við gerum okkur ekki fullkomlega grein fyrir hver verður raunveruleg launaþróun á markaðnum. En þetta byggist á ákveðinni spá, greiningu, eins og hv. þingmaður þekkir vel af sinni reynslu, af sínum störfum, bæði sem ráðherra og þingmaður, þannig að það er alveg hárrétt. Þetta getur alveg farið frá 0 og hugsanlega upp í 10 milljarða. En meginmarkmiðið með þessu er að rjúfa þennan múr sem er búið að byggja utan um efnaminnsta og fátækasta fólkið í landinu sem mun fá að njóta hvað þetta varðar. Við erum að reyna að rífa það út úr fátæktargildrunni sem er rammlega búið að smíða utan um það síðustu árin. Og kjaragliðnun þessara einstaklinga á þeirra framfærslu hefur farið vaxandi ár frá ári og er núna frá efnahagshruni talin fara að slaga hátt í 100.000 kr. á mánuði sem þessir fátækustu þegna landsins hafa þurft að taka á sig. Við teljum það óásættanlegt. Hér höfum við verið að innleiða ákveðið tæki sem við köllum stöðugleikareglu sem mun slá á alls konar sveiflur og við þurfum að afla tekna á móti því sem við eyðum. Við munum fylgja því eftir með glöðu geði, svo það sé sagt. Við erum bjartsýn og brosandi, bæði hvað lýtur að því að efla fólkið út á vinnumarkaðinn og koma í veg fyrir vanvirkni og reyna að höggva á þessa flæðilínuframleiðslu öryrkja sem hafði verið í gangi hér frá fráfarandi ríkisstjórn. Þannig að í okkar herbúðum og okkar góðu ríkisstjórn, okkar starfsstjórn, ríkir bjartsýni og bros og við munum gera allt til þess að lyfta öllu fátækasta fólkinu okkar upp í mannsæmandi framfærslu.