Störf þingsins.
Frú forseti. Mig langar hér við þetta tilefni að reyna að ræða aðeins um samhengi hlutanna. Hér hafa tollarnir, sem Bandaríkjamenn ætla að leggja á innfluttar afurðir, verið nefndir í fyrri ræðum. Hæstv. utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í fyrrakvöld eftir að upplýsingar lágu fyrir um með hvaða hætti Bandaríkjamenn ætluðu að nálgast þessa hluti, með leyfi forseta, að 10% tollur Bandaríkjanna á Ísland geti verið högg fyrir íslenskan sjávarútveg. Það blasir við að þetta er högg fyrir alla þá sem stunda útflutning til Bandaríkjanna, hvar sem viðkomandi fyrirtæki er staðsett. Mér sýnist holt og bolt að 3–4 milljarðar séu umfang þeirra tolla sem um ræðir er varða sjávarútveginn. Þetta þykir högg fyrir íslenskan sjávarútveg.
Á sama tíma stöndum við hér og ræðum veiðigjöld og bara rétt fyrir fjórum mínútum síðan kom hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir hér upp og kveinkaði sér undan því að viðbrögðin væru fullharkaleg við áformum ríkisstjórnarinnar um að hækka veiðigjöldin um 10 milljarða, 10.000 milljónir, sem er sennilega hartnær þreföld sú upphæð sem er höggið sem þessir tollar færa sjávarútveginum. Og það þykir ekkert mál, 10.000 milljónir eru bara ekkert mál. En 3.000–4.000 milljónir eru mikið högg, sem það sannarlega er.
Ég vil bara nefna þetta hérna í því ljósi að við verðum að átta okkur á heildaráhrifum og afleiddum áhrifum ákvarðana sem við tökum hérna. Það kom mér mjög á óvart í gær að hæstv. fjármálaráðherra skyldi upplýsa þá afstöðu sína að hann teldi heildarskattspor sjávarútvegsins vaxa með þeirri ákvörðun að hækka veiðigjald um 100%. Við heyrum harmakveinin landið um kring, m.a. frá Ísafjarðarbæ sem hefur tekið nálgun ríkisstjórnarinnar með mikilli varúð, svo vægt sé til orða tekið. Þannig að ég bara hvet okkur hér til að setja hlutina í samhengi. Hæstv. utanríkisráðherra álítur tollana réttilega högg fyrir íslenskan sjávarútveg en margfalt högg fyrir íslenskan sjávarútveg og íslenskt atvinnulíf skiptir engu máli.