156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

Störf þingsins.

[10:41]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Um störf þingsins. Það varð ágætlega víðfeðm innáskipting inn á Alþingi eftir kosningarnar í nóvember. Margir gamalreyndir og minna reyndir þingmenn hurfu á braut og aðrir nýir, bæði reyndir og óreyndir, komu hér til starfa. Það hefur verið ánægjulegt að kynnast nýjum samstarfsmönnum síðastliðnar vikur en kynnin og samstarfið eru þó tilefni þess að ég kem hér upp til að brýna okkur sem hér sitjum, kjörna fulltrúa á hinu háa Alþingi, um nokkur grundvallaratriði.

Þrískipting ríkisvaldsins í löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald er eitt megineinkenni stjórnskipunar Íslands. Við alþingismenn förum með löggjafarvaldið ásamt forseta Íslands, dómarar með dómsvaldið, og svo fara forsetinn og stjórnvöld með framkvæmdarvaldið. Þrískipting. Hugmyndin er sú að valdinu sé skipt og þannig takmarkað og hver þáttur valdsins tempri hina.

Við hér á Alþingi setjum lögin; lög sem framkvæmdarvaldinu og öðrum ber að fara eftir. Lögin eiga sannarlega oftar en ekki rætur að rekja til framkvæmdarvaldsins en við alþingismenn berum ábyrgð á lagasetningunni, ábyrgð á að gefa okkur tíma, vanda til verka og fara að lögum sem gilda um setningu laga.

Við alþingismenn gegnum líka ótrúlega mikilvægu eftirlitshlutverki gagnvart framkvæmdarvaldinu. Það er hlutverk sem við eigum að rækja vel og taka alvarlega. Í eftirlitshlutverkinu felst mikilvægt aðhald gagnvart ráðherrunum og stjórnsýslunni.

Virðulegi forseti. Það getur tekið tíma að aðlagast nýju hlutverki og einhver okkar voru að færa sig milli greina ríkisvaldsins eftir langa setu. En þessi stutta upprifjun mín á þessum mikilvægu grundvallarþáttum íslenskrar stjórnskipunar gagnast vonandi einhverjum.