Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég las áhugaverða grein í morgun, sem oft áður, sem varðar tollastríðið sem hafið er. Ef Ísland væri í Evrópusambandinu yrðu bandarískir tollar á íslenskar vörur 20%. Það sem verra væri, ESB væri þá með samningsumboð Íslands gagnvart Bandaríkjunum. Ísland nýtur lágmarkstolla, 10%, og semur beint við Bandaríkin. Nágrannaþjóðir okkar eru margar hverjar ekki jafn heppnar, ef svo má að orði komast. Á norskar vörur leggjast 15% tollar, 20% á vörur frá Evrópusambandsríkjum og yfir 30% á vörur frá hinum EFTA-þjóðunum, mig minnir 31% á Sviss og 37% á Liechtenstein.
Yfirlýsingar og áætlanir forseta Bandaríkjanna um breytta tolla eru raunar líklega upphaf að gjörbreyttu alþjóðaviðskiptakerfi. Afleiðingarnar fyrir alþjóðasamfélagið eru ófyrirséðar en hitt er hins vegar deginum ljósara að alþjóðahyggja síðustu áratuga er mögulega liðin undir lok. Í þessu samhengi vekja viðbrögð íslenskra ráðamanna athygli, til að mynda hæstv. fjármálaráðherra sem hefur sagt of snemmt að segja til um hvort það komi til með að hafa áhrif á hugsanlegar aðildarviðræður Íslands við ESB, eða öllu heldur aðlögunarviðræður eins og ég vil kalla þær, að lönd innan sambandsins hafa fengið á sig 20% tolla.
Virðulegur forseti. Því er oft haldið fram af hæstv. ríkisstjórn, og þá aðallega þegar hentar málafylgju, að Noregur geri hlutina með þessum eða hinum hættinum og þess vegna sé æskilegt að Ísland geri eins. Nú hagar þannig til að um þessar mundir stendur yfir landsfundur Verkamannaflokks Noregs. Formaður þess flokks er Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra landsins. Forsætisráðherrann hefur í tengslum við landsfundinn látið hafa eftir sér að ný þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB núna sé ekki það besta fyrir Noreg því að Noregur þurfi að beina kröftum sínum að því að tryggja norska hagsmuni hér og nú, (Forseti hringir.) ekki að eyða orkunni í langt og krefjandi aðildarferli sem gæti auk þess klofið landsmenn. (Forseti hringir.) Ég myndi segja að slíkt hið sama gildi um Ísland.