Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það má segja að helstu lífsgæði okkar felist í því að geta tjáð okkur með skýrum hætti við ólíkar aðstæður og af mismunandi tilefni, að við verðum ekki undir vegna þess að við skiljum ekki það sem við okkur er sagt, að við getum átt í rökræðum og varið okkur með orðum. Þetta er framtíðarsýn sem við óskum öllum ungmennum okkar, að þau standi keik og full sjálfstrausts þó að þau mæti mótbyr. En því miður er þetta ekki veruleiki allra barna. Málþroski er tvíþættur. Í honum felst les- og málskilningur og beiting tungumálsins. Segja má að málþroska ljúki aldrei, en hann er mestur á fyrstu sex æviárum eða á máltökuskeiði. Til að framfarir séu í málþroska verða börn að fá tækifæri til að hlusta og nota tungumálið. Til að ná góðum tökum á tungumáli þurfa börn að verja 40–60% af vökutíma í því málumhverfi. Og hvers vegna er ég að nefna þetta hér? Jú, vegna þess að börn verja að jafnaði 21% af vökutíma í skólunum. Þá er miðað við að þau séu í skólanum 180 daga á ári, að hver skóladagur sé um sex klukkustundir og að þau sofi í tíu.
Virðulegi forseti. Við búum við breytta samfélagsgerð, útvarpsfréttir með kvöldmatnum og íslensk dagskrá í línulegri útsendingu heyrir sögunni til. Streymisveitur afþreyingarefnis, þar sem hver og einn velur sér myndefni og hlustunarefni, sem í mörgum tilfellum er á öðru tungumáli en íslensku, hafa að miklu leyti leyst hina línulegu miðla af hólmi. Þá skipa samfélagsmiðlar stóran sess í samskiptum og sem fréttaveita ungmenna. Síðast en ekki síst er misjafnt hversu miklum tíma börn og ungmenni verja utan skóla í íslensku málumhverfi. Hætta er á að málumhverfi margra ungmenna utan skóla sé að mestu á öðru tungumáli en íslensku með tilheyrandi áhrifum á málþroska þeirra.
Hér verður að koma til samfélagslegt átak. Við þurfum að snúa þessari þróun við. Við öll sem störfum með börnum og ungmennum þurfum að taka höndum saman fyrir framtíð barnanna okkar.