Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við verðum að spyrja: Er verið að sniðganga Suðurnes, og ef svo er, hvers vegna? Ef ekki, af hverju eru þessi tækifæri þá ekki nýtt? Við á Suðurnesjum búum yfir kraftmiklu, fjölbreyttu samfélagi. Sveitarfélögin okkar hafa staðið sig frábærlega í að bjóða fólki upp á tækifæri til að byggja sér líf. En þegar kemur að því að ríkið stígi inn og axli ábyrgð þá er ekkert sem kemur þaðan. Þá á ég sérstaklega við í menntamálum. Menntunarstigið á Suðurnesjum er það lægsta á landinu og brottfall úr framhaldsskólum er hátt. Nemendur af erlendum uppruna fá ekki þann stuðning sem þau þurfa. Íslenskukennslan er ófullnægjandi. Það er engin móttökuleið til að aðlagast skólakerfinu. Þessi hópur týnist í kerfinu og við látum það gerast. Þetta er ekki bara spurning um menntun. Það snýst líka um atvinnuuppbyggingu. Fjármagn skilar sér ekki á svæðið. Lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru burðarás samfélagsins fá ekki tækifæri til að vaxa. Það er eins og traustið vanti en framtíðarsýn er hér til staðar. Við á Suðurnesjum eigum auðlindir, við eigum hugmyndir, við eigum mannauð og við eigum Keili. Keilir er lykillinn að því að tengja saman menntun og atvinnulíf, sérstaklega í tækni og nýsköpun, en verkefnið þeirra bíður svars í ráðuneytinu. Sama á við um stækkun á FS, það bíður svars í ráðuneytinu, stækkun sem dugar skólanum. Það þarf að bregðast við núna. Ég skora á ríkisstjórnina: Hættið að horfa fram hjá Suðurnesjum, styðjið við Keili, stækkið FS, fjárfestið í menntun og stuðlið að fjölbreytileika og sjálfbæru atvinnulífi. Tækifærin eru á Suðurnesjum og við þurfum pólitískan vilja til að það verði að veruleika. — Takk fyrir. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )