Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það má með sanni segja að hér hafi eiginlega allt farið í skrúfuna í gær þegar ég ætlaði að eiga orðastað við hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sem var staðgengill hæstv. utanríkisráðherra í umræðunni um utanríkismál. En ég ætla að reyna að bæta úr því að einhverju leyti hér. Auðvitað var textinn í fjármálaáætlun frekar rýr hvað varðar þennan mikilvæga málaflokk en þar kom þó fram að verið væri að bregðast við og það ætti m.a. að gera með auknum varnarbúnaði hér á landi. En, virðulegi forseti, það skiptir okkur máli hér í þinginu hvað felst í slíku. Hvað felst í auknum varnarbúnaði hér á landi? Er hann af hálfu okkar, íslenskra stjórnvalda? Er hann af hálfu annarra ríkja? Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Ég verð að segja að ég hef verulegar áhyggjur af því hvernig hlutirnir blasa við varðandi fjármögnun Landhelgisgæslunnar, lögreglu og almannavarna varðandi þjóðaröryggismál sem tengjast okkar varnarmálum beint. Hæstv. forsætisráðherra sagði reyndar í umræðunni hérna í gær að það væri búið að eyrnamerkja 900 milljónir í Landhelgisgæsluna. Það er virkilega vel af sér vikið. Ég er ánægður með slíkar yfirlýsingar. En það verður þá að raungerast.
Staðan er bara þannig að öryggismál í Evrópu kalla á aukið samstarf á milli ríkisstjórnar og þings og upplýsingagjöf til þjóðarinnar. Hæstv. utanríkisráðherra ræddi m.a. aukið varnarsamstarf við Evrópusambandið í samtali sínu við blaðamann RÚV í gær. Þar kom fram að sækjast ætti eftir því að fjölga stoðum undir varnir landsins með auknu samstarfi við Evrópusambandið og sækjast eftir ákveðnum öryggistryggingum. Þetta er einmitt það sem við þurfum að ræða hér á þingi, hvað felst í því. Og það kann bara vel vera rétt hjá ráðherranum að við þurfum á því að halda. En eru þær gagnkvæmar til að mynda gagnvart Evrópusambandinu? Og svo má lengi telja. Þannig að ég vil bara brýna ríkisstjórn og þing til þess að halda slíku samtali áfram og það skiptir máli að upplýsingagjöf frá stjórnvöldum um þennan málaflokk sé skýr.