Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég held að við getum öll sammælst um það að staðan í alþjóðaheiminum sé einna stærsta málið okkar. Ég er nýkomin frá Helsinki ásamt Íslandsdeild Norðurlandaráðs þar sem verið var að ræða öryggis- og varnarmál og samfélagsöryggi. Það er alveg ljóst að Norðurlöndin standa saman. Þau standa saman um mikilvægi þess að við þurfum að tryggja öryggi þessara landa. En það er líka alveg ljóst að félagar okkar á Norðurlöndum eru í annarri stöðu en við hér á Íslandi því að þau eru jú með her.
Hæstv. utanríkisráðherra er á NATO-fundi og það hefur heyrst í henni í útvarpsfréttum að það er auðvitað krafa um það hjá okkar bandamönnum að við gerum meira. Í gær ætluðum við að ræða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og hv. þm. Jóhann Friðrik Jóhannsson sagði hér áðan að hún væri frekar rýr af upplýsingum. Það er alveg yfirmáta kurteislega sagt hjá hv. þingmanni, eins og honum einum er lagið. Það er ekkert komið inn á þennan mikilvæga málaflokk hér.
Virðulegur forseti. Ef við sammælumst um að þetta séu stærstu málin okkar nú á þessum tíma — og ég held líka að ríkisstjórnin eigi mikinn stuðning hjá stjórnarandstöðunni í þessum málum — þá er mikilvægt að við tökum þetta samtal hér. Við sjáum að Grænlendingar hafa sameinast um næstum því þjóðstjórn, að það séu allir flokkar þar í ríkisstjórn vegna þess að þeir vita hve mikilvægt það er að standa saman núna. Við í Sjálfstæðisflokknum erum tilbúin að styðja hæstv. ríkisstjórn og utanríkisráðherra í þessum málaflokki en við þurfum að fá að eiga þetta samtal.
Virðulegur forseti. Nú er næsta vika eftir af þinginu og svo förum við í tveggja vikna frí. Ég held að það sé nauðsynlegt að við fáum hér sérstakt samtal við hæstv. utanríkisráðherra í næstu viku þar sem við getum tekið þátt í samtalinu um stöðu mála því að hún er síbreytileg og ekki síst að ræða hvernig við hér á Íslandi ætlum að bregðast við.