156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

Störf þingsins.

[10:57]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég er kominn hingað til að ræða störf þingsins. Ég vil minna hv. stjórnarandstöðu á að hæstv. forseti sýndi mikla lipurð í gærkvöldi og frestaði umræðu, tók tillit til athugasemda stjórnarandstöðunnar. Ég vona svo sannarlega að stjórnarandstaðan meti þetta og komi til móts við ríkisstjórnina og greiði hér fyrir málum þannig að þau komist áfram inn í nefndir. Mér finnst það bara vera hinn lýðræðislegi ferill. Hér hafa hv. þingmenn Sjálfstæðisflokksins minnt ríkisstjórnina á hver hafi löggjafarvaldið. Ég vil líka minna hv. stjórnarandstöðu á það að það skiptir máli að málin komist inn í nefndir og menn dvelji ekki of lengi í 1. umræðu. Og þá er ég alls ekki að gera lítið úr 1. umræðu. Það skiptir máli að geta spurt hæstv. ráðherra út í málin og skýrt þau þannig að þau komi góð og skýr inn í nefndirnar. En það verður líka að gefa þjóðfélaginu það að senda málin út í samfélagið þannig að við fáum umsagnir inn í þingið og hægt sé að taka tillit til þeirra. Þetta er mikils um vert. Nú sjáum við það síðar í dag hvernig hv. stjórnarandstaða bregst við þessu sáttaboði; munum við hér dvelja tímunum saman við umræðu um mál sem hv. þingmenn eru meira og minna sammála um eða munum við sjá einhvern framgang í störfum þingsins? Það verður áhugavert að sjá hvernig deginum vindur fram. En ég vona svo sannarlega að stjórnarandstaðan endurgjaldi þá lipurð og traust sem henni var sýnt í gærkvöldi þannig að störfin verði til fyrirmyndar í þessu fram að páskum.