156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

Störf þingsins.

[11:00]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætlaði í ræðu minni að ræða um stöðu lögreglunnar sem er mér afar hugfólgin og var búinn að skrifa ræðu. Ég held að ég hreinlega geti það ekki eftir þessa ræðu hv. þm. Sigurjóns Þórðarsonar. Mér er eiginlega gjörsamlega ofboðið og hefur mér nú oft verið ofboðið. Hvert er hv. þingmaður að fara, virðulegur forseti? Var hann að ætlast til þess að okkur sem erum í stjórnarandstöðu sé ekki gert kleift að tjá okkur um þau mál á Alþingi sem okkur langar að tjá okkur um? Ég skil ekki þennan málflutning, virðulegur forseti, ég bara skil hann ekki. Að fara að setja það í samhengi við einhvern sáttatón sem var hér í gærkvöldi — það hefur bara ekkert með umræðu dagsins að gera, sú staða sem kom upp í þinginu í gærkvöldi. Það er allt annað mál og allt önnur umræða. Að ég sem þingmaður þurfi að biðja um leyfi hjá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni fyrir því hvað ég tala lengi og um hvaða mál — ég bara skil ekki hvert við erum komin. Ég get upplýst hv. þm. Sigurjón Þórðarson, vin minn úr Skagafirði, að ég mun ekki spyrja hann um leyfi fyrir því hvað ég tala mikið, hvað ég tala lengi og í hvaða málum ég ætla að tala á Alþingi. Ég mun bara meta það sjálfur og ég vona svo sannarlega að hann, hv. þingmaður, geri slíkt hið sama. Ég get upplýst hann hér að hann þarf ekki að spyrja mig um leyfi fyrir því í hvaða málum hann stígur inn.