Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Það eru heldur betur kveðjurnar sem skattastjórn Kristrúnar Frostadóttur sendir þessari þjóð, sérstaklega byggðum landsins. Það kemur bara nýr skattur ofan á skatt ofan á skatt. (Gripið fram í: Gjöld.) Það er kallað hérna fram í gjöld. Allar álögur hafa áhrif, hafa áhrif á fjárfestingargetu. Hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir kom inn á þetta hérna áðan, hagnað fyrirtækjanna. Í hverju eru þessi fyrirtæki að fjárfesta í heimabyggð? Í nýsköpuninni, þjónustufyrirtæki, útsvari launþeganna sinna. Hvert fer þetta annað en á landsbyggðina? (Gripið fram í.) Og í útflutningsverðmæti þjóðarinnar. Það er sjávarútvegurinn, það er ferðaþjónustan, með mjög óljósri skattlagningu. Það eru bændurnir í gegnum kílómetragjald sem dæmi. Hvað mun kosta að flytja afurðirnar og vörurnar frá bændunum á markaðinn? Hvað kostar að koma með aðföngin til bændanna eftir að það er búið að setja kílómetragjald á flutninginn? Það er alltaf eitthvað nýtt sem dregur úr fjárfestingargetunni og samkeppninni. Allt er þetta fjármunir sem annars væru á landsbyggðinni en er verið að flytja hingað í þennan ræðustól til að útdeila. Þetta gengur ekki upp. Og svo er þetta allt leyndó. Þessi skattaríkisstjórn er orðin að leynifélagi. Þau hafa engar upplýsingar og ef þau hafa þær þá vilja þau ekki einu sinni gefa þær. Ég fékk svar frá hæstv. atvinnuvegaráðherra áðan um að hún hefði bara ekki hugmynd um það, ekki hugmynd um hvert útsvar væri af strandveiðunum. (Forseti hringir.) Samt á að breyta strandveiðunum. Samt á að setja veiðigjöld á sjávarútveginn (Forseti hringir.) sem sveitarfélögin fá ekki að svara fyrir. En hæstv. atvinnuvegaráðherra veit ekkert hvaða áhrif þetta hefur, (Forseti hringir.) hefur ekki gögnin. (Gripið fram í.)