um fundarstjórn forseta.
Frú forseti. Ég skal vera stuttorður til að orsaka ekki frekari tafir hér en það er greinilegt hvernig á að leggja upp daginn. Hér fór hv. þm. Sigurjón Þórðarson í pontu áðan og enn er ýjað að því að hér hafi eitthvað óeðlilegt átt sér stað í gær, fundarstjóri hafi þurft að sýna okkur sérstaka mildi á einhvern hátt með því að hliðra til, þegar hið raunverulega sem var að gerast, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, var að það var ætlast til þess af okkur að við mótuðum okkur skoðanir og tækjum afstöðu byggða á gögnum sem voru ekki til staðar, hv. þingmaður. Ef dagurinn rúllar svona af stað þá ert þú ekkert að hjálpa meiri hlutanum.
(Forseti (ÞSv): Ég vil minna hv. þingmenn á að vara sig á mottunum [Hlátur í þingsal.] (ÞorgS: Þakka þér fyrir, forseti.) og að ávarpa forseta ávallt.) (Gripið fram í.)